Frá stjórn HG
Gunnar FinnssonVerið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
VISSIR ÞÚ...
Það stendur enginn einn sem á Sniglana að!
Sniglarnir, vélhjólasamtök Lýðveldisins, hafa löngum staðið þétt við bakið á Hollvinum Grensáss. Nýlega afhentu þeir enn eina veglega gjöf, sem var ágóði af jólaballi samtakanna, en allir sem að þeirri skemmtun komu gáfu vinnu sína, allt efni og aðstöðu. Ágóðinn nam meira en hálfri milljón króna og var skipt bróðurlega milli Hollvina Grensáss og Styrktarfélagsins Ás. Veittu fulltrúar þeirra gjöfinni móttöku í félagsheimili Sniglanna, þar sem meðfylgjandi mynd af gefendum og þiggjendum var tekin. Hollvinir Grensáss senda Sniglunum innilegar þakkir fyrir veglega gjöf og ómetanlegan stuðning. Það stendur enginn einn sem á Sniglana að!
STYRKTARTÓNLEIKAR!
Sem hluti af dagskrá Breiðholtsdaga verða haldnir tónleikar til styrktar Hollvinum Grensásdeildar í Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 22. nóv. 2011 kl. 19.30 og fram koma margir þekktir listamenn og kórar, sem ætla að gera þessa tónleika sem veglegasta! Allir gefa vinnu sína, Fella og Hólakirkja og annað tilfallandi er einnig án endurgjalds. Aðgangseyrir er kr. 1500 og eru tónleikagestir vinsamlega beðnir um að hafa reiðufé, því ekki verður hægt að borga með korti. Allir eru hvattir til að koma og styðja gott málefni!
Stórkostlegur árangur af Jólabasar HG
Mikil og góð stemning ríkti í Safnaðarheimili Grensáskirkju í gær þegar fjöldi fólks streymdi á jólabasar til styrktar Grensásdeild. Varningurinn féll í góðan jarðveg og má segja að nær hver einasti gripur hafi selst! Heilu fjöllin af vöfflum og stórfljót af kaffi og kakói hurfu eins og dögg fyrir sólu og var mikill handagangur í eldhúsinu þar sem vélhjólakapparnir Baddi og Rúnar stýrðu aðgerðum. Fjöldi starfsmanna Grensásdeildar aðstoðaði.
Jólabasar Hollvina Grensásdeildar í undirbúningi
Þann 19. nóvember n.k. halda Hollvinir Grensásdeildar (HG) jólabasar frá kl. 13:00 til 18:00 í safnaðarheimili Grensáskirkju til styrktar starfsemi Grensásdeildar. Þar verður margt glæsilegra muna til sölu, er henta sérlega vel til jóla- sem tækifærisgjafa. Einnig verður selt kaffi, súkkulaði og vöflur með þeyttum rjóma.
Vonast er til að þau, sem þetta lesa, komi á basarinn og segi sem flestum vinum og ættingjum frá honum og hvetji þau til að koma. Ávinningurinn er tvöfaldur því jafnframt því að fá fallegan mun eða veitingar á góðu verði er verið að styrkja hið frábæra starf Grensásdeildar.
LANDSPÍTALINN – NÝBYGGINGAR VIÐ HRINGBRAUT
Því er fagnað að nú skuli loks eiga að finna margdreifðum rekstrareiningum Landspítala háskólasjúkrahúss einn samanstað. Hins vegar er lausnin sem virðist hafa orðið fyrir valinu mikið áhyggjuefni bæði hvað varðar byggingar- og rekstrarkostnað, og eins að hún er langt því frá eins notendavæn og hún mætti og ætti að vera. Tekið er á nokkrum meginatriðum í þessu sambandi hér fyrir neðan. Önnur, sem skipta máli en ekki rædd eru t.d. kostnaður við aðkomukerfi, við húsnæði fyrir vísindastarfsemi, sem stór spurning er um hvort allt þurfi að staðsetja við spítalann, o.fl..
Áheit í Reykjavíkurmaraþoni.
Í Reykjavíkurmaraþoninu sl.laugardag voru margir sem styrktu Hollvini Grensás með áheitum á hlaupara. Þeim öllum ásamt hlaupurum eru hér með færðar þakkir Hollvina. Einn þessara duglegu hlaupara er Örn Vigfús Óskarsson, mikill keppnismaður. Hann hefur tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni í 5 ár og setur ávallt persónulegt met um leið. Auk þessa ótrúlega árangurs er hann einna atkvæðamestur við að safna áheitum til handa Hollvinum Grensás, nú að upphæð kr.384.000.



Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011