Frá stjórn HG
Gunnar FinnssonVerið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
VISSIR ÞÚ...
24. apríl 2010
Edda Heiðrún heiðursfélagi HG
Vel sóttur aðalfundur Hollvina Grensásdeildar var haldinn 19. apríl í safnaðarheimili Grensáskirkju. Sérstakur gestur fundarins var Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra og var Edda Heiðrún Backman gerð að heiðusfélaga.
Gengið var til dagskrár og flutti Gunnar Finnssonar, skýrslu formanns og greindi frá aðkomu félagsins í söfnunarátakinu „Á rás fyrir Grensás“. Þá gerði Þórunn Þórhallsdóttir, gjaldkeri, grein fyrir reikningunum. Var stjórnin endurkosin, þau Gunnar Finnsson, Þórir Steingrímsson, Guðrún Pétursdóttir, Þórunn Þórhalldsóttir, Ásgeir B. Ellertsson og Baldvin Jónsson. Meðal þeirra er tóku til máls voru þeir Stefán Yngvason, sviðsstjóri lækninga, endurhæfingarsviðis Grensásdeildar og Aðalsteinn Pálsson, sviðsstjóri byggingarsviðs LSH. Gerðu þeir grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á húsnæði Grensásdeildar. Sigrún Knútsdóttir, yfirsjúkraþjálfari Grensásdeildar þakkaði stjórninni fyrir vel unnin störf. Að lokum tók Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, til máls og rómaði stöðu mála og gekk formlega í félagið. Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, var kosinn fundarstjóri og Guðrún Pétursdóttir, ritari.
Til baka



Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011