Frá stjórn HG

 
  Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    24. júlí 2010

    Grensás- 300.000,- króna styrkur!

    300.000,- króna styrkur!

    Þriðjudaginn 29. júní 2010 afhenti Gunnlaugur Júlíusson,  ofurhlauparinn þekkti,  söfnunarátakinu  „Á rás fyrir Grensás“, á Grensásdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss, sem Edda Heiðrún Backman leikkona átti frumkvæðið að undir merkjum Hollvina Grensásdeildar (HG),  300 þúsund króna afrakstur bókar sinnar “Að sigra sjálfan sig”,  sem Vestfirska forlagið hefur gefið út.  

    Gunnar Finnsson, formaður veitti þessari söfnun móttöku og þakkaði Gunnlaugi, er studdi með einstökum myndarbrag við söfnunarátakið en þess er skemmst að minnast, er það hófst formlega með hlaupi hans,  í samvinnu við UMFÍ,  frá Grensásdeild þann 5. júlí 2009 til Akureyrar þar sem því lauk fimm dögum síðar, þann 10. júlí 2009.
     
    Til baka