Frá stjórn HG

 
  
Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    31. mars 2011

    Grensás- Góður árangur af góðri söfnun

    Góður árangur af góðri söfnun

    Aðalfundur HG [Hollvina Grensásdeildar] var fjölsóttur í safnaðarheimili Grensáskirkju dags.31.03.2011.  Gengið var til venjubundinnar dagskrár og Þórir Steingrímsson var kosinn fundarstjóri og Guðrún Pétursdóttir fundarritari.  Þá gaf Gunnar Finnsson, formaður HG skýrslu stjórnar og síðan gerði Þórunn Þórhallsdóttir, gjaldkeri, grein fyrir reikningunum.  Nokkrar fyrirspurnir vor bornar fram og síðan var skýrsla stjórnar og reikningarnir samþykktir.

                         
    Edda Heiðrún Backmann                               Gunnar Finnsson, Þórir Steingrímsson, Orri
                                                                          Huginn Ágústsson og Þórunn Þórhallsdóttir.
     

    Þá var samþykkt samhljóða að hækka árgjaldið frá 1000 kr. í 1500 kr. og síðan   fylgdi formaðurinn eftir starfsáætlun komandi árs. Kosning stjórnar fór fram og eru Edda Bergmann, Guðrún Pétursdóttir, Gunnar Finnsson og Þórunn Þórhallsdóttir, Ottó Schopka aðalmenn og varamenn eru þau Baldvin Jónsson og Guðný Daníelsdóttir.  Skoðunarmenn reikninga voru kosnir Bergur Jónsson og Ellert Skúlason.  Edda Heiðrún Bachman var valin sérstakur talsmaður félagsins.  Undir liðum önnur mál gerði Orri Huginn Ágústsson grein fyrir söfnunarátakinu „Á rás fyrir Grensás“ og afhenti fundinum bol Gunnlaugs Júlíusarsonar, er hann var í þegar söfnunin hófst í júlí 2010.  Þá kynnti  Stefán Yngvason, yfirlæknir á Grensásdeild, teikningar af nýjum bílastæðum er byggðar verða í sumar.  Góður árangur af góðri söfnun.

    Til baka