Frá stjórn HG

 
  
Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    18. júlí 2011

    Grensás- Hávarður Tryggvason afhendir tæpar hálfa milljón!

    Hávarður Tryggvason afhendir tæpar hálfa milljón!

    Fimmtudaginn14. júlí 2011 afhenti Hávarður Tryggvason, bassaleikari og „Ísfirðingur“, stjórn Hollvina Grensásdeildar allt að kr. 500.000,- til styrktar deildinni.  Gunnar Finnsson, formaður Hollvina Grensásdeildar tók við fjárhæðinni við hátíðlega athöfn á deildinni með þakkarorðum.  Stefán Yngvason, yfirlæknir, tók einnig til máls og þakkaði Hávarði fyrir hans framtak.

          
    Þessa fjárhæð safnaði Hávarður undir átakinu „Á rás fyrir Grensás“, með því að hjóla Vestfjarðarhringinn í lok júnímánaðar og fór rangsælis hring um þjóðvegi „neðri kjálka“ Vestfjarða, alls  tæplega 700 km vegalengd.  Ferðina fór Hávarður til að fagna 50 ára afmæli sínu  og til að vekja athygli á átakinu.  Gerði hann þetta með dyggri aðstoð fjölskyldu sinnar, Þórunni Maríu Jónsdóttur, eiginkonu ásamt tveimur börnum þeirra er „trússuðu“ ferðina. 
    Til baka