Frá stjórn HG
Gunnar Finnsson
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
VISSIR ÞÚ...
09. ágúst 2011
Mótorhjólamessa til stuðnings Hollvinum Grensásdeildar!
Þriðjudaginn 9. ágúst 2011 afhentu fyrirsvarsmenn Sniglanna, Grillhússins og Digraneskirkju, Hollvinum Grensásdeildar, fjárhæð er safnaðist saman á Mótorhjólamessu í Digraneskirkju fyrr á þessu ári. Vilja þeir leggja áherslu á mikilvægi endurhæfingarhlutverks Grensásdeildar. Hafa forsvarsmenn þessara samtaka hug á því að gera þetta að árlegum viðburði annan í Hvítasunnu í Digraneskirkju, þá með stuðningi Grillhússins á Sprengisandi í Reykjavík, er grillar sérstaka „Easy Riders hamborgara“.
Rennur ágóðinn til þessa málefnis. Næsta „Mótorhjólamessa“ verður annan í Hvítasunnu 2012 og verður greint frá því síðar. Baldvin Jónsson, stjórnarmaður Hollvina Grensásdeildar, þakkaði þetta framtak og veitti fjárhæðinni móttöku.
Til baka



Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011