Frá stjórn HG

 
  Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    25. ágúst 2011

    Grensás- Áheit í Reykjavíkurmaraþoni.

    Áheit í Reykjavíkurmaraþoni.

    Í Reykjavíkurmaraþoninu sl.laugardag voru margir sem styrktu Hollvini Grensás með áheitum á hlaupara. Þeim öllum ásamt hlaupurum eru hér með færðar þakkir Hollvina.  Einn þessara duglegu hlaupara er Örn Vigfús Óskarsson, mikill keppnismaður.  Hann hefur tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni  í 5 ár  og setur ávallt persónulegt met um leið.  Auk þessa ótrúlega árangurs er hann einna atkvæðamestur við að safna áheitum til handa Hollvinum Grensás, nú að upphæð kr.384.000.
     


    Gígja Magnúsdóttir
    og Herdís Þórisdóttir
    sjúkraþjálfarar hlupu 21 km
     
     
    Karen Bjarnhéðinsdóttir sjúkrþaj.að
    klára 42 km, bætti tíma sinn um 6 mín!
    Örn Vigfús Óskarsson
     
    Páll E Ingvarsson læknir fór 42Rúnar Björn fór 3 km. Erna fagnar með
     

    Saga Arnar er sú að hann fékk heilablóðfall í  júní 2006 og fékk sína frumendurhæfingu á Grensásdeild. Hann heldur ennþá tryggð við stofnunina og æfir þar tvisvar í viku í heilsurækt fyrir heilablóðfallsfólk.
    Strax ári eftir áfallið fór hann 3 km, 2008 voru það 10 km á tímanum 2:20 klst. 2009 3 km, 2010 10 km tíminn 1:50:48 klst. og 2011 10 km á nýju meti 1:26:49 klst.
    Örn mundi flokkast undir flokk spastískra ef hann keppti í íþróttum fatlaðra.
     
    Örn er töluvert spastiskur á þessum hraða og hleypur ekki en meðalhraðinn hans i ár var 6.9 km/klst sem ófatlaðir gætu verið stoltir af að halda út i 10 km. Bætingin nú er 24 mínútur milli ára. Hann sýnir með þessum árangri að þrátt fyrir 5 ár með helftarlömun er stöðugt hægt að bæta sig.
    Til baka