Frá stjórn HG
Gunnar FinnssonVerið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
VISSIR ÞÚ...
19. október 2011
LANDSPÍTALINN – NÝBYGGINGAR VIÐ HRINGBRAUT
Því er fagnað að nú skuli loks eiga að finna margdreifðum rekstrareiningum Landspítala háskólasjúkrahúss einn samanstað. Hins vegar er lausnin sem virðist hafa orðið fyrir valinu mikið áhyggjuefni bæði hvað varðar byggingar- og rekstrarkostnað, og eins að hún er langt því frá eins notendavæn og hún mætti og ætti að vera. Tekið er á nokkrum meginatriðum í þessu sambandi hér fyrir neðan. Önnur, sem skipta máli en ekki rædd eru t.d. kostnaður við aðkomukerfi, við húsnæði fyrir vísindastarfsemi, sem stór spurning er um hvort allt þurfi að staðsetja við spítalann, o.fl..

1. Byggingarkostnaður er mun hærri en vera þarf vegna þess að hönnunin byggist á mörgum lágum byggingum dreift um stórt svæði í stað krosslaga marghæða byggingar með lyftur óg ýmsa sameiginlega þjónustu í miðkjarna og með bílageymslu undir. Það mundi lækka byggingarkostnað til muna enda er vitað að kostnaður á fermetra í stórri blokk er mun lægri heldur en í lítilli blokk, hvað þá raðhúsi eða einbýlishúsi. Þá eykur það kostnaðinn að mikið er um klappir á byggingasvæðinu en gera þarf umtalsvert af undirgöngum milli bygginga. Þróuninn erlendis er að stór sjúkrahús með margþætta þjónustu eins og LSH eru byggð á marghæða grundvelli.
2. Rekstrarkostnaður verður mun hærri vegna þess hversu starfsemin dreifist yfir margar aðskildar byggingar. Starfslið mun nýtast verr sakir þess að það þarf að fara mun lengri vegalengdir í starfi. T.d. í stað þess að fara beint upp eða niður í lyftu með sjúklinga eða til að sinna öðrum verkefnum þarf að ganga langa ganga milli deilda. Það þýðir einfaldlega að minni tími verður aflögu fyrir lækna og hjúkrunarlið til að sinna sjúklingum og mun það krefjast meiri mannafla með tilheyrandi auknum rekstrarkostnaði ef halda á uppi sama þjónustustigi. Þá eykur fjöldi undir- og tengiganga, sem þessari hönnun fylgir, hita-, rafmagns-, þrif-, og viðhaldskostnað.
3. Sjúkrahús eru til þess að sinna sjúklingum. Auðvelt aðgengi skiptir sjúklinga og aðstandendur þeirra afar miklu máli en ekki verður séð að hér hafi mikil samráð verið haft við þessa hagsmunaaðila eða samtök þeirra. Enda er hönnunin ekki notenda/sjúklingavæn. Bílstæði/geymsla er lengst niðri til vinstri í útjaðri svæðisins. Þurfa sjúklingar því að fara langa ganga til meðferðar- eða skoðuðunardeilda. Fyrir meirihluti sjúklinga eins og roskið fólk, hreyfihamlaða og sjúklinga með hjarta- og/eða öndunarfærasjúkdóma er þetta mikið álag. Sá fjöldi mun aukast með þeirri stefnu að fækka legudeildasjúklingum og færa þá í stað þess á göngudeildir. Þá er sjúkrahótelið í jaðri ofarlega í brekku (langt frá bílageymslunni) og brattinn þar svo mikill að neðanjarðargangurinn, sem tengir hótelið við spítalann, getur ekki brattans vegna verið á einni hæð heldur þarf að skipta honum í tvær með viðeigandi aukakostnaði þar með talinn lyftukostnaði.
Þjóðarbúið býr við mikinn fjárhagsvanda og verður að sýna sem mest aðhald á öllum sviðum. Mikill niðurskurður hefur átt sér stað í heilbrigðisþjónustu um land allt og ekki séð fyrir endann þar á. Niðurskurðurinn hefur bitnað sérstaklega á LSH og aðdáunarvert hversu samt hefur tekist að halda uppi þjónustu þar. Ber það stjórnendum og starfsliði LSH glæsilegan vitnisburð. En lengra verður ekki komist. Hæft starfsfólk hverfur til starfa erlendis vegna tekjumissis og geypilegs vinnuálags. Endurnýjun sérfræðinga stefnir í voða því íslenskun læknum í sérfræðinámi erlendis bjóðast þar mun betri tekjur og starfsskilyrði. Deildum er lokað sakir þess að starfslið vantar. Þá lengjast biðlistar af sömu ástæðum eða vegna þess að ekki er til fé til að framkvæma aðgerðir sem aðstaða og búnaður er fyrir hendi til að framkvæma. Og endurnýjun tækja upp á hundruðir milljóna króna hefur dregist. Nauðsyn er engu síður á því að sameina sem flesta þætti rekstrar LSH hvort sem það yrði við Hringbraut eða mögulega í Fossvogi. Ekki verður öðru trúað en að bygging marghæða byggingar hafi verið einn af valkostunum í því sambandi. Er því nauðsyn áður en lengra er haldið að fram komi hver kostnaðurinn við þann valkost er en hann er örugglega mun lægri en þeir 50 milljarðar sem nú á að leggja í áætlaðar framkvæmdir. Mismuninn mætti nýta til að draga úr frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og mæta brýnustu þörfum þess í dag og á næstu árum.
Reykjavík, 26. september 2011
f.h. stjórnar Hollvina Grensásdeildar
Gunnar Finnsson
(formaður)
Reykjavík, 26. september 2011
f.h. stjórnar Hollvina Grensásdeildar
Gunnar Finnsson
(formaður)



Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011