Frá stjórn HG

 
  Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    24. október 2011

    Grensás- Jólabasar Hollvina Grensásdeildar í undirbúningi

    Jólabasar Hollvina Grensásdeildar í undirbúningi

    Þann 19. nóvember n.k. halda Hollvinir Grensásdeildar (HG) jólabasar frá kl. 13:00 til 18:00 í safnaðarheimili Grensáskirkju til styrktar starfsemi Grensásdeildar. Þar verður margt glæsilegra muna til sölu, er henta sérlega vel til jóla- sem tækifærisgjafa.  Einnig verður selt kaffi,  súkkulaði og vöflur með þeyttum rjóma.
    Vonast er til að þau, sem þetta lesa, komi á basarinn og segi sem flestum vinum og ættingjum frá honum og hvetji þau til að koma.  Ávinningurinn er tvöfaldur því jafnframt því að fá fallegan mun eða veitingar á góðu verði er verið að styrkja hið frábæra starf Grensásdeildar.
     

    Til baka