Frá stjórn HG

 
  Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    21. nóvember 2011

    Grensás- Stórkostlegur árangur af Jólabasar HG

    Stórkostlegur árangur af Jólabasar HG

    Mikil og góð stemning ríkti í Safnaðarheimili Grensáskirkju í gær þegar fjöldi fólks streymdi á jólabasar til styrktar Grensásdeild. Varningurinn féll í góðan jarðveg og má segja að nær hver einasti gripur hafi selst! Heilu fjöllin af vöfflum og stórfljót af kaffi og kakói hurfu eins og dögg fyrir sólu og var mikill handagangur í eldhúsinu þar sem vélhjólakapparnir Baddi og Rúnar stýrðu aðgerðum. Fjöldi starfsmanna Grensásdeildar aðstoðaði.

    Innilegar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóginn og þeirra sem gáfu fallegar vörur á basarinn. Sérstakar þakkir fá Heiðar Sigurðsson feldskeri, Ásmundur I. Þórisson garðyrkjubóndi og Edda Heiðrún fyrir höfðinglegar gjafir.

       
    Með samhentu átaki allra söfnuðust 1,3 milljónir króna, - helmingi meira en áætlað hafði verið!
          
          
         
        
        
              
      
                
           
          
            
           
     
    Til baka