Frá stjórn HG

 
  
Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    Árangur af Á RÁS FYRIR GRENSÁS!

    Árangur af Á RÁS FYRIR GRENSÁS!
    Komið hefur fram að Aðalsteinn Pálsson, deildarstjóri fasteigna, Eignasviði Landspítala kynnti fyrir stjórn Hollvina Grensásdeildar um stöðuna og hönnun og framkvæmd við yfirbyggingu bílastæðisins við aðalinngang Grensásdeildar.  Þá hefur hann einnig lagt fram kostnaðaráætlun og liggja þetta fyrir hér á heimasíðunni til kynningar og hægt er að sækja þessar upplýsingar hér:
    nánar

    Skýrsla stjórnar fyrir aðalfund 2011

    Skýrsla stjórnar fyrir aðalfund 2011
    Samtökin Hollvinir Grensásdeildar voru stofnuð 5. apríl 2006.  Tilgangur þeirra er að styðja við,  efla og styrkja endurhæfingarstarfsemi þá,  sem fram fer á Grensásdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss eða í tengslum við þá starfsemi.  Skal það gert með öflun fjár til þeirrar starfsemi og eins með því að vekja athygli á og hvetja til styrktar starfseminnar á opinberum vettvangi.
    nánar

    Nýtt umhverfi á Grensás

    Nýtt umhverfi á Grensás

    Aðalsteinn Pálsson, deildarstjóri fasteigna, Eignasviði Landspítala, kynnti fyrir stjórn Hollvina Grensásdeildar og fyrirsvarsmönnum hennar, teikningar af nýjum bílastæðum fyrir framan Grensásdeild, er gjörbreytir allri aðkomu að deildinni.  Leist mönnum vel á það sem fyrir lá og næstu skref verð tekin á næstunni og má búast við, ef gengur sem horfir að ný bílastæði, með bílskýli yfur bifreiðastæðum fatlaðra.   

    nánar

    AÐALFUNDUR

    AÐALFUNDUR
    HOLLVINIR GRENSÁSDEILDAR
     
    nánar

    Sniglarnir safna fyrir Grensás

    Sniglarnir safna fyrir Grensás

    Forsvarsmenn Sniglanna afhentu formanni HG, Gunnari Finnsyni formanni félagsins, um 230 þús. kr.,  sem þeir vildu gefa til starfsins á Grensásdeild í gegnum HG.  Viðstaddir voru fyrirsvarsmenn Grensásdeildarinnar, ásamt starfsfólki, og fór afhendingin fram á Grensásdeild þriðjudaginn 21. desember sl..  Sniglarnir hafa lagt HG öflugt lið gegnum árin því fyrrverandi formaður Sniglanna,  Baldvin Jónsson,  er varamaður í stjórn HG en situr alla fundi hennar og hefur unnið mikla og góða vinnu í þágu samtakanna

    nánar

    Tónleikar á Grensásdeild

    Tónleikar á Grensásdeild
    Ingibjörg Friðriksdóttir, dóttir Ólafar heitinnar Pétursdóttur,  söng ásamt Andra Birni á stuttum tónleikum fyrir vistfólkið á Grensásdeild.  Ingibjörg hefur áður safnað fé fyrir Grensásdeild,  m.a. fyrir tölvustýrðu handæfingartæki, er kostaði milljónir króna.
    nánar

    Þakklæti sýnt með opnu húsi!

    Þakklæti sýnt með opnu húsi!
    Laugardaginn  20. nóvember sl. hélt Grensásdeild opið hús fyrir gesti og gangandi og var fjölsótt.   Kynnt voru húsakynni deildarinnar, þar á meðal æfingasalir, sundlaug,  æfingaríbúð og sjúkrastofur.  Eins var starfsfólkið til staðar til að leiðbeina og svara spurningum enda var tilgangurinn að kynna hvað deildin gerir og fyrir hverju hún stendur.
    nánar

    Opið hús á Grensásdeild verður laugardaginn 20. nóvember kl. 13.00 – 16.00

    Opið hús á Grensásdeild verður laugardaginn 20. nóvember kl. 13.00 – 16.00

     

    Með opnu húsi vill starfsfólk  þakka fyrir frábærar undirtektir við átakið „Á rás fyrir Grensás“ og gefa almenningi kost á að kynna sér starfsemina, skoða húsnæðið, m.a. nýja þjálfunaríbúð og skoða fyrirliggjandi tillögur um breytingar og nýbyggingu.

    nánar

    Opið hús á Grensásdeild 20. nóvember n.k.!

    Opið hús á Grensásdeild 20. nóvember n.k.!
    Opið hús á Grensásdeild og eru allir hvattir til að koma á staðinn og sjá.  Mikilvægi deildarinnar er aldrei of oft rómað, en nú er tækifæri fyrir hvern og einn að skilja það sem þar fram fer.  Eru því allir   sem láta sig þessi mál varða að fara á opið hús Grensásdeildar laugardaginn 20. nóvember og kynna sér þetta!
    nánar

    BRÉF FRÁ RÁÐHERRA.

    BRÉF FRÁ RÁÐHERRA.
    Álfheiður Ingadóttir er lét af störfum heilbrigðisráðherra 2. september, sýndi mikinn skilning á og stuðning við starfsemi Grensásdeildar.  Kom það glöggt í ljós í bréfi til Hollvina Grensásdeildar, dagsett 1. september, er var eitt hennar síðasta embættisverk.  HG fagna bréfinu mjög og þeim hug sem þar er að baki.
    nánar
    Eldri