Frá stjórn HG

 
  Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    Starfsemi endurhæfingardeildar Landspítala á Grensási
     
     
     
     
    Þjónusta í 36 ár
     
    Frá opnun deildarinnar árið 1973 hefur endurhæfingardeildin á Grensási veitt sérhæfða endurhæfingarþjónustu þeim sem verða fyrir heilsutapi af völdum slysa eða sjúkdóma. Flestir sjúklingar koma frá öðrum deildum Landspítala. Þjónustan er heildstæð og sniðin að hverjum og einum.
     
    Í boði eru þrenns konar þjónustustig, legudeild, dagdeild og göngudeild.
     
    Á legudeild er veitt sólarhringsþjónusta allt árið í 26 sjúkrarúmum. Árið 2008 dvöldu 494 sjúklingar á legudeild, að meðaltali 22 daga hver.
     
    Sjúklingar á dagdeild búa heima eða á sjúkrahóteli en stunda endurhæfingu á deildinni virka daga. Allt að 30 sjúklingar eru á dagdeild hverju sinni. Árið 2008 voru komur á dagdeild um 3.000 talsins og komur á göngudeild um 4.000.
     
     
    Fjölbreytt þjónusta
     
    Verkefni deildarinnar eru mjög margbreytileg en eiga öll það sameiginlegt að gefa sjúklingum tækifæri til að öðlast á ný sem mest af fyrri færni og aðlagast breyttum aðstæðum. Algengustu verkefnin eru vegna heilablóðfalla, heilaskaða, mænuskaða, fjöláverka, liðskipta, alvarlegra veikinda og missi útlims.
     
     
    Fagþekking
     
    Starfsfólk deildarinnar býr yfir mikilli fagþekkingu, fjölbreytilegri menntun og reynslu sem virkjuð er í teymum þar sem sjúklingar er virkir þátttakendur. Endurhæfing tekur til líkamlegra, sálrænna og félagslegra þátta. Sett eru markmið í upphafi meðferðar og áherslur lagaðar að þeim.
     
     
    Í farabroddi nýjunga
     
    Á undanförnum árum hefur ný tækni rutt sér rúms í endurhæfingu s.s. á sviði sértækrar meðferðar, þjálfunar og hjálpartækja. Endurhæfingardeildin hefur tekið virkan þátt í þeirri þróun á undanförnum árum. Dæmi um slíkt er ný þjálfunartækni með aðstoð sýndarveruleika og gönguhermis, meðferð vöðvastjarfa með ígræddum lyfjadælum og meðferð öndunarlömunar með þindargangráð.