Vaskur hópur Hollvina hljóp fyrir Grensásdeild í blíðskaparveðri 19.ágúst 2023. Þvílík stemning og stuð! Takk öll fyrir stuðninginn!
Það var metþátttaka í Reykjavíkurhlaupinu 19.ágúst 2023. Nokkrir hópar hlupu fyrir Grensásdeild og eru þeim öllum færðar bestu þakkir!
Hollvinir Grensásdeildar stóðu fyrir landssöfnun á RÚV þann 6.október 2023.
Árangur söfnunarinnar var frábær og ber vitni þeirri velvild sem deildin nýtur í samfélaginu.
Áfram er hægt að styrkja Grensás hér á síðunni.
5.október 2023 var tekin fyrsta skóflustunga að 4.400 m2 viðbyggingu sem mun gerbreyta aðstöðu til endurhæfingar, og verða bæði rúmgóð, björt og falleg.
Hollvinir hjálpa til með því að safna fyrir sérhæfðum tækjabúnaði í nýja húsið. Hver króna skiptir máli, margt smátt gerir eitt stórt og þörfin fyrir góðan búnað mikil.
Við þökkum öllum sem leggja Grensásdeild lið og óskum eim velfarnaðar!